April 8, 2008 at 10:44 am · Filed under Blogfærslur
Búinn að vera að mynda slatta af fermingum síðastliðin mánuð en núna eru byrjuð brúðkaupin.
Tók fyrsta brúðkaupið í vetur svona rétt fyrir áramót hjá Einari og Söndru.

En svo var ég að taka myndir fyrir brúðkaups boðskort í síðustu viku og bætti við það fermingamyndum á sunnudaginn.


Rosalega ánægður með útkomuna úr þessum tökum báðum og ég held að þau sem fengu myndirnar séu alveg æðislega sátt líka.
Brúðkaupsvertíðin er annars alveg að fara að bresta á með okkar eigin brúðkaupi :)
Rétt rúmlega mánuður í brúðkaupið en spennan er orðin gríðarleg bæði að giftast dúlluni minni en líka að fara til Maldívu Eyja með henni.
Bendi enn og aftur á “Hafðu samband” hlekkin hérna fyrir ofan ef ykkur vantar einhverja þjónustu.
March 20, 2008 at 1:41 pm · Filed under Portrait
Vinafólk okkar Korinnu voru að ferma son sinn Gunnar núna um síðustu helgi.
Gunnar er alger töffari og ég verð að segja að ég er ótrúlega ánægður með myndirnar sem komu út úr þessari fermingamyndatöku.



Gaman að taka það fram að það eru minni en tveir mánuðir í brúðkaupið hjá okkur!
Mæli með að þið skoðið http://www.google.com/maps og leitið að Male. Við erum að fara þangað í brúðkaupsferðina okkar :)
March 12, 2008 at 8:32 pm · Filed under Blogfærslur, Portrait
2 Myndir úr fermingatökum um helgina.


Canon EOS 5D – 24-105 f/4L – @ f/10
Mjög gaman að taka myndir af fólki sem mætir hresst í tökuna og vill láta taka skemtilegar myndir af sér.
March 11, 2008 at 12:09 pm · Filed under @Home
Hef nú ekki mikið verið að mynda fermingar síðastliðin ár en það hefur svolítið breyst í ár.
Tók 2 fermingar á laugadaginn síðasta og ég er alveg rosalega ánægður með útkomuna.

Canon EOS 5D – 24-105 f/4 @ f/5,6

Canon EOS 5D – 24-105 f/4 @ f/5,6