May 10, 2009 at 3:49 pm · Filed under Blogfærslur
Fékk spurningu inni á www.fagun.is Fágun.is Félag Áhugamanna um Gerjun
Hvernig býr maður til sitt egið jógúrt.
Ég ákvað að búa til litla myndaseríu.

Innihaldslýsing
1L G-Mjólk eða Mjólk sem hefur verið hituð upp yfir 85°C og látið kólna niður fyrir 40°, Hrein jógúrt blönduð samanvið sem stofn, 1.5L af sjóðandi vatni í ílátið sem heldur hita á dótinu. Eða reyna að halda sæmilegu hitastigi í 12 tíma undir ílátinu með mjólkini.

Mjólkin, Vatnið og Jógúrtin kominn í ílátið og lokað

Látið standa í 12 tíma

Ílát opnað og kælt vel og njótið með Cheerios
Endilega komið með spurningar ef það eru einhverjar :)
May 3, 2009 at 1:39 am · Filed under Blogfærslur
Fórum í smá ferð um Snæfellsnesið í dag hérna er smá preview af myndum þaðan :)
17 Maí, þá verður komið 1 ár síðan ég og Korinna giftum okkur á Búðum.
-
-
Búðarkirkja
-
-
-
Lónsdrangar í briminu
-
-
Korinna og Kirkjufellið
-
-
Fiður
Ef einhverjir hafa enn ekki séð brúðkaupsmyndir þá eru þær hér.
http://wedding.hjalti.se
May 1, 2009 at 4:17 pm · Filed under Bjór Uppskriftir
Jörvi Stout er fyrsti Stoutin sem Brugghúsið Jörvi býr til.
Grunnurinn að uppskriftini er Midwest Supplies Oatmeal Stout
Í pakkanum er
1.9 Lítrar af Dökku Malt Extracti
250 g Haframjöl
120 g Dökk Ristað Malt – Chocolate Malt
120 g Ristað Bygg – Roasted Barley
30 gröm af Fuggles Humlum
og Muntons Þurger
Ég breytti uppskriftini aðeins og bætti við dökk ristaða maltið og setti örlítið Crystal Malt.
Skipti svo út Gerinu og setti Safbrew S-33 ger í staðinn. (takk Úlfar fyrir þessa hugmynd)
Dótið allt meskjað og svo soðið saman í klukkutíma.
ca. 3′a tíma process allt í allt og bjórinn er núna kominn í Gerjun.
Búinn að útbúa Logo fyrir hann svo þegar hann fer á flöskurnar.
